Lífið

„Við erum öll byrj­endur á ein­hverjum tíma­punkti“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Rakel María er ein öflugsta hlaupakona landsins.
Rakel María er ein öflugsta hlaupakona landsins.

Með hlýnandi veðri og hækkandi sól fá margir fiðringinn til að reima á sig hlaupaskóna og fara út að hlaupa í náttúrunni. Rakel María Hjaltadóttir, hlaupari, þjálfari og förðunarfræðingur, kynntist útihlaupum sumarið 2018. Hún segir íþróttina næra sig andlega og líkamlega.

„Það er eitthvað sem gerist þegar maður fer út í náttúruna, fær hjartað til að slá hraðar og finnur frelsið að geta hreyft líkamann svona. Hlaupin gefa mér orku en geta líka gefið mér hugarró þegar ég þarf á því að halda. Ég get ekki mælt meira með því að gefa þessu séns og sjá hvort fólk finni ekki töfrana sem mér finnst fylgja útihlaupunum,“ segir Rakel María sem átti í byrjun erfitt með að hlaupa einn kílómeter án þess að stoppa:

„Ég fékk mér hund og byrjaði að hlaupa með hann en leið ekki á löngu þar til hlaupin voru orðin meira fyrir mig heldur en hundinn.“

Rakel María

Rakel María gefur hlaupaþyrstum lesendum Lífsins á Vísi nokkur einföld ráð hvernig best sé að koma sér í hlaupagírinn.


Ekki ofhugsa og komdu þér af stað

Stærsta skrefið er að reima á sig skóna og koma sér út úr húsi. Ekki ofhugsa hlutina og komdu þér bara af stað. Til að byrja með er algjör óþarfi að hugsa um einhvern kílómetrafjölda og er algjört lykilatriði að byrja hægar og setja sér raunhæf markmið. 

Settu þér markmið um að fara út að hlaupa, og punktur. 

Taktu eftir þolinu aukast

Settu upp plan sem þú reynir að bæta með hverju skipti. Til dæmis að hlaupa á milli ljósastaura.

Fyrst ferðu út og hleypur og labbar til skiptis, næst geturðu kannski hlaupið milli tveggja staura og labbað einn legg á móti. Þetta má líka setja upp í tíma, t.d. hlaupa eina mínútu og labba í eina. Lengja svo hlaupin hægt og rólega á móti labbinu. Þú finnur þolið aukast og það er ótrúlega mikil hvatning.

Rakel María

Passaðu að fara ekki of hratt

Það er mjög mikilvægt að sprengja sig ekki og fara of hratt af stað. Mér finnst gott að miða við hraða þar sem ég get haldið uppi samræðum, þá veit ég að ég er á hraða sem líkaminn ræður við og mér líður vel. Ekki hafa áhyggjur þó sá hraði sé mjög rólegur. Þú þjálfar upp þolið hægt og rólega og þá eykst hraðinn með tímanum. Það gerist hins vegar ekki ef maður gefst upp sem gerist oft þegar fólk klikkar á þessu.

Finndu þér félagsskap

Hlaupasamfélagið í dag er sí stækkandi og hlaupahópar eru aðgengilegir út um allt. Það sem er svo dásamlegt við hlaupin er að maður kynnist frábæru fólki og getur notið þess að hreyfa sig saman úti í náttúrunni. 

Ég get lofað þér því að það verður tekið vel á móti þér sama hvar þú skráir þig.

Finndu þér hlaupahóp sem þér líst vel á og prófaðu að mæta á æfingu. Við erum alltof oft hrædd við að taka þátt af sökum frammistöðukvíða. Ekki hugsa um að þú sért byrjandi og getir nú ekki mætt með þaulvönum hlaupurum á æfingu. Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti og það er alltaf tekið tillit til þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref. Burtu með efasemdir og frammistöðukvíðann, taktu sénsinn og prófaðu.

Brostu og njóttu

Við eigum bara einn líkama. Það eru forréttindi að lifa í heilbrigðum líkama sem getur hreyft sig og við eigum svo sannarlega að njóta þess. Finndu gleðina í því að fara út og hlaupa, settu upp brosið, finndu hjartsláttinn aukast og gleðihormónin brjótast fram. 

Þegar þú hleypur með bros á vör verða hlaupin auðveldari og skemmtilegri, ég lofa !

Hugmyndir að hlaupaleiðum fyrir byrjendur

Vífilstaðavatn

2,5 km hringur sem liggur í kringum vatnið. Ótrúlega fallegt umhverfi og auðvelt að stjórna því hversu langt maður vill fara. Þegar maður er aðeins orðinn vanur þá er nóg af stígum sem liggja upp í Heiðmörkina út frá vatninu og risastór veröld sem opnast fyrir manni þar.

Rauðavatn og Hólmsheiði

Leggðu bílnum við Moggahúsið í Hadegismóum og þar liggja stígar bæði niður að Rauðavatni eða upp á Hólmsheiðina en þar er fjöldinn allur af gönguleiðum sem er gaman að skoða.

Elliðaárdalur og Hólminn

Elliðaárdalurinn er dasamleg perla sem við eigum á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að fara fullt af litlum hringjum eða einn stóran hring sem er um 10 km. Í Elliðarárdalnum við rafstöðvarhúsið er lítill skógur sem er kallaður Hólminn. Þar er fullt af stígum þar sem hægt er að fara góða hringi frá einum km upp í þrjá km.

Rakel María

Helgafell og Úlfarsfell

Þessi tvö fell eru nokkuð byrjendavæn og bjóða upp á allskonar leiðir. Helgafell í Hafnafirði er uþb. sex kílómetra löng leið fram og til baka sem er nokkuð auðvelt upp að. Það er einnig stígur sem liggur hringinn í kringum fjallið sem ég mæli með að prófa. 

Úlfarsfell býr yfir endalausum möguleikum og fjöldinn allur af leiðum upp og niður. Ég mæli með að prófa þær sem flestar og festa sig ekki á einni leið.

Hvaleyrarvatn í Hafnafirði

Svæðið í kringum Hvaleyrarvatn er falin perla sem ég mæli með að þið skoðið. Þar er alltaf logn og dásamlegt að hlaupa um svæðið, jafnvel taka með sér teppi og nesti og eiga góða stund við vatnið á góðum sumardegi.


Fyrir áhugasama má fylgjast með Rakel Maríu á Instagram. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×